Psalms 135

1Halelúja. Lofið nafn Drottins, lofið hann, þér þjónar Drottins, 2er standið í húsi Drottins, í forgörðum húss Guðs vors. 3Lofið Drottin, því að Drottinn er góður, leikið fyrir nafni hans, því að það er yndislegt. 4Því að Drottinn hefir útvalið sér Jakob, gert Ísrael að eign sinni. 5Já, ég veit, að Drottinn er mikill og að Drottinn vor er öllum guðum æðri. 6Allt, sem Drottni þóknast, það gjörir hann, á himni og jörðu, í hafinu og öllum djúpunum. 7Hann lætur skýin uppstíga frá endimörkum jarðar, gjörir eldingarnar til að búa rás regninu, hleypir vindinum út úr forðabúrum hans. 8Hann laust frumburði Egyptalands, bæði menn og skepnur, 9sendi tákn og undur yfir Egyptaland, gegn Faraó og öllum þjónum hans. 10Hann laust margar þjóðir og deyddi volduga konunga: 11Síhon, Amorítakonung, og Óg, konung í Basan, og öll konungsríki í Kanaan, 12og gaf lönd þeirra að erfð, að erfð Ísrael, lýð sínum. 13Drottinn, nafn þitt varir að eilífu, minning þín, Drottinn, frá kyni til kyns, 14því að Drottinn réttir hlut þjóðar sinnar og aumkast yfir þjóna sína. 15Skurðgoð þjóðanna eru silfur og gull, handaverk manna. 16Þau hafa munn, en tala ekki, augu, en sjá ekki, 17þau hafa eyru, en heyra ekki, og eigi er heldur neinn andardráttur í munni þeirra. 18Eins og þau eru, verða smiðir þeirra, allir þeir, er á þau treysta. 19Ísraels ætt, lofið Drottin, Arons ætt, lofið Drottin! 20Leví ætt, lofið Drottin, þér sem óttist Drottin, lofið hann! 21Lofaður sé Drottinn frá Síon, hann sem býr í Jerúsalem! Halelúja.
Copyright information for Icelandic